14 nóv. 2018Einn leikur er á dagskránni í kvöld í Domino's deild karla þegar Reykjavíkurliðin ÍR og Valur mætast í Hertz-hellinum í Seljaskóla kl. 19:15. Þetta er fyrsti leikurinn 7. umferð deildarinnar og fara aðrir leikir svo fram á morgun fimmtudag og föstudag.
Landsleikjahlé er í Domino's deild kvenna næstu tvær vikurnar en í kvöld á eftir leik kvöldsins verður sérstakur uppgjörsþáttur (Fyrsti af fjórum á þessu tímabili).
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
🍕 Domino's deild karla
🗓 Miðvikudagurinn 14. nóv.
🖥 Lifandi tölfræði á kki.is
⏰ 19:15
🏀ÍR-Valur
⏰ 21:15
🏀 Körfuboltakvöld · Uppgjörsþáttur fyrir Domino's deild kvenna á Stöð 2 Sport
#korfubolti #dominosdeildin