30 okt. 2018
Það er nóg að gera hjá Rúnari Birgi Gíslasyni, FIBA eftirlitsmanni og Davíð Tómasi Tómassyni, FIBA dómara þessa dagana.
Rúnar Birgir verður eftirlitsmaður Europe Cup Men á leik Bakken Bears gegn Z Mobile Prishtina í dag 31. október. Leikurinn fer fram á heimavelli Bakken Bears í Aarhus í Danmörku og hefst leikurinn kl. 18:30 að staðartíma.
Davíð Tómas dæmir í EuroLeague Women leik CastorsBraine gegn ESBVA -LM á morgun 31. október. Leikurinn fer fram í Charleroi í Belgíu kl. 21:00 að staðartíma.
Davíð Tómas mun einnig dæma 1. nóvember í EuroCup Women leik BBC Sint -Katelijne-Waver gegn BCF Elfic Fribourg. Leikurinn fer fram í Sint Katelijne Waver í Belgíum kl. 20:30 að staðartíma.