20 ágú. 2018
Seinni helgi Afreksbúða KKÍ fara fram um næstu helgi. Afreksbúðirnar eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands en þar mun yfirþjálfari ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum.
Afreksbúðir í ár eru fyrir ungmenni fædd 2004 og voru leikmenn boðaðir til æfinga í vor á fyrri helgina af yfirþjálfurunum en um 50-60 leikmenn fá boð úr þessum eina árgangi.
Yfirþjálfarar Afreksbúða 2018 eru þeir Lárus Jónsson hjá drengjum og Kristjana Eir Jónsdóttir hjá stúlkum.
Síðari æfingahelgin verður dagana 25.-26. ágúst og verður æft í íþróttahúsinu á Álftanesi.
Dagskrá seinni helgarinnar verður eftirfarandi:
Stúlkur · æfingahelgi 2 í íþróttahúsinu á Álftanesi:
Laugardagur 25. ágúst · kl. 11:00-13:00 og 15:00-17:00
Sunnudagur 26. ágúst · kl. 09:00-11:00 og 13:00-15:00
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Drengir · æfingahelgi 2 í íþróttahúsinu á Álftanesi:
Laugardagur 25. ágúst · kl. 09:00-11:00 og 13:00-15:00
Sunnudagur 26. ágúst · kl. 11:00-13:00 og 15:00-17:00
#korfubolti