13 júl. 2018
Á morgun, laugardaginn 14.júlí mun U20 karlalandsliðið hefja leik í A-deild Evrópukeppninnar sem haldin verður í Chemnitz í Þýskalandi.
Þetta er í annað sinn í sögunni sem Ísland er á meðal 16 bestu þjóða Evrópu í þessum aldursflokki og keppa því í A-deild EM. Það var í fyrsta sinn í fyrra 2017 sem Ísland átti lið í A-deild U20 karla, tókst liðinu þá að komast í 8-liða úrslit mótsins og hélst því uppi í A-deild.
Mótið fer fram 14.-22. júlí. Með Íslandi í riðli er Serbía, Svíþjóð og Ítalía.
Eftir riðlakeppnina verður svo leikið um sæti. 38 af 51 einni þjóð innan FIBA Europe senda lið til keppni í Evrópukeppni U20 karla.
Fyrsti leikurinn fer fram kl.18:00 að staðartíma eða 16:00 að íslenskum tíma þegar strákarnir okkar mæta Serbíu.
Allar upplýsingar um mótið hjá strákunum má sjá hér og leikjaplan þeirra má sjá hér.
Allir leikir A og B deilda EM yngri landsliða eru í beinni útsendingu á youtube rás FIBA og einnig er lifandi tölfræði frá öllum leikjum þannig að mjög auðveld er að fylgjast með leikjum ÍSLANDS á EM yngri liða. Einnig verða fréttir af hópnum á fésbókarsíðu KKÍ regulega og öðrum miðlum KKÍ. Myllumerkin #korfubolti og #FIBAU20EUROPE eru notuð á samfélagsmiðlum
Hópurinn er svona skipaður:
Adam Eiður Ásgeirsson Þór Þ.
Arnór Hermannsson KR
Árni Elmar Hrafnsson Breiðablik
Bjarni Guðmann Jónsson Skallagrímur
Eyjólfur Þór Ásbergsson Skallagrímur
Hákon Örn Hjálmarsson ÍR
Ingvi Þór Guðmundsson Grindavík
Jón Arnór Sverrisson Keflavík
Sigurkarl Róbert Jóhannesson ÍR
Snjólfur Marel Stefánsson Njarðvík
Sveinbjörn Jóhannesson Breiðablik
Þórir G.Þorbjarnarson Nebraska
Israel Martin Þjálfari
Baldur Þór Ragnarsson Aðsoðarþjálfari
Stefán Magni Árnason Sjúkraþjálfari
Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari
Erlingur Hannesson Fararstjóri