21 apr. 2018
Í dag er komið að öðrum leik Vals og Hauka í lokaúrslitum Domino's deild kvenna og fer leikur dagsins fram í Valshöllinni að Hlíðarenda. Haukar unnu fyrsta leik liðanna á fimmtudaginn var og eru því 1-0 yfir í einvíginu. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu lyftir Íslandsmeistari 2018 í Domino's deildinni.
Leikurinn í dag verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst hann kl. 16:00.
-> Saga úrslitakeppni kvenna
-> Meistaratitlar kvenna
Leikdagar í úrslitum kvenna verða sem hér segir:
Leikur 1 · 19. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur
Leikur 2 · 21. apríl kl. 16:00 · Valur-Haukar
Leikur 3 · 24. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur
Leikur 4 · 27. apríl kl. 19:15 · Valur-Haukar (ef þarf)
Leikur 5 · 30. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur (ef þarf)