19 apr. 2018

Í kvöld er komið að því að lokaúrslit Domino's deildar kvenna 2017-2018 hefjist þegar Haukar og Valur mætast í sínum fyrsta leik. Leikar hefjast á heimavelli Hauka, í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum, og hefst leikurinn kl. 19:15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu lyftir Íslandsmeistari 2018 í Domino's deildinni.

Sagan:
Haukar eru að leika í 7. sinn í lokaúrslitum um íslandsmeistaratitilinn í efstu deild og hafa hampað honum þrisvar sinnum. Valur er að leika í þriðja sinn í úrslitakeppninni og í fyrsta sinn í sjálfum lokaúrslitunum.

-> Saga úrslitakeppni kvenna
-> Meistaratitlar kvenna

Leikdagar í úrslitum kvenna verða sem hér segir:

Leikur 1 · 19. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur
Leikur 2 · 21. apríl kl. 16:00 · Valur-Haukar
Leikur 3 · 24. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur
Leikur 4 · 27. apríl kl. 19:15 · Valur-Haukar  (ef þarf)
Leikur 5 · 30. apríl kl. 19:15 · Haukar-Valur  (ef þarf)

#korfubolti #dominos365