![Sindri sigra 2. deild karla 2017-2018](/library/Myndir/islandsmeistarar-2018/sindri_islm_2018_web.png)
16 apr. 2018Sindri frá Höfn varð um helgina íslandsmeistari 2. deildar karla 2018 eftir úrslitaleik á Höfn gegn KV úr Reykjavík. Leikurinn fór fram á laugardaginn og urðu lokatölur 82:77 og mun því Sindri leika í 1. deild karla á næstu leiktíð.
KKÍ óskar Sindra til hamingju!
#korfubolti