23 mar. 2018Í kvöld eigast við fyrir norðan á Akureyri heimalið Þórs og Fjölnir úr Grafarvogi. Liðin leika í undanúrslitum og er staðan 2-1 fyrir Fjölni fyrir leik kvöldsins. Fjölnir vann fyrstu tvo leiki liðanna en Þór Akureyri minnkaði muninn í síðasta leik.
Leikurinn hefst kl. 19:30 og verður í beinni tölfræðilýsingu á kki.is.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslitin gegn annaðhvort KR eða Grindavík sem leika í hinni viðureigninni.
#korfubolti