21 mar. 2018Í kvöld eru tveir leikir á dagskránni í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í undanúrslitunum en þá mætast Grindavík og KR öðru sinni og Fjölnir og Þór Akureyri í þriðja leik sinnar viðureignar. 
 
Leikur Grindavíkur og KR hefst kl. 19:15 í Mustadhöllinni í Grindavík og leikur Fjölnis og Þórs Akureyrar hefst kl. 19:30 í Dalhúsum í Grafarvogi. 

Staðan er 2-0 fyrir Fjölni gegn Þór Ak. og 1-0 fyrir KR gegn Grindavík. Þau lið sem fyrr vinna þrjá leiki fara í lokaúrslitin í ár og leika um sæti í Domino's deildinni að ári.

#korfubolti