26 jan. 2018
Sigmundur Már og Rúnar Birgir voru í verkefnum á vegum FIBA í vikunni.
Sigmundur Már Herbertsson dæmdi leik Tango Bourgers Basket gegn Entente Sportive B. Villeneuve D'ascq lille Metropole í EuroLeague kvenna miðvikudaginn 24. janúar. Leikurinn fór fram í Bourges í Frakklandi. Meðdómarar Sigmundar voru Pedro Coelho, aðaldómari frá Portúgal og Alija Ferevski frá Makedóníu.
Rúnar Birgir Gíslason var einnig eftirlitsmaður FIBA þennan sama dag á leik Bakken Bears Aarhus gegn Tsmoki-Minsk. Leikurinn fór fram í Aarhus í Danmörku.