27 okt. 2017Undankeppni EuroBasket kvenna, EM 2019, hefst þann 11. nóvember með heimaleik landsliðsins í Laugardalshöllinni. Þá kemur sterkt lið Svartfjallalands í heimsókn en Ísland leikur í fjögurra liða riðli ásamt Svartfjallalandi, Bosníu og Slóvakíu. Um er að ræða mjög sterkan riðil og léku til að mynda Svartfjallaland og Slóvakía á EM kvenna nú í sumar. Leikið verður í landsliðsglugga sem stendur yfir dagana 6.-16. nóvember og verða leikdagar eftirtaldir:
11. nóv.: Ísland-Svartfjallaland kl. 16.00 í Höllinni
15. nóv.: Slóvakía-Ísland í Slóvakíu
Ívar Ásgrímsson og hans aðstoðarþjálfarar hans, Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir, hafa valið 15 leikmenn sem þeir ætla að boða inn til æfinga fyrir verkefnið nú í nóvember.
Eftirtaldir leikmenn eru í hópnum:
Nafn | Félag | Landsleikir |
Berglind Gunnarsdóttir | Snæfell | 13 |
Birna Valgerður Benónýsdóttir | Keflavík | 3 |
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir | Valur | 2 |
Embla Kristínardóttir | Grindavík | 14 |
Emelía Ósk Gunnarsdóttir | Keflavík | 7 |
Guðbjörg Sverrisdóttir | Valur | 10 |
Hallveig Jónsdóttir | Valur | 10 |
Helena Sverrisdóttir | Haukar | 64 |
Hildur Björg Kjartansdóttir | Leganés, Spánn | 17 |
Ragna Margrét Brynjarsdóttir | Stjarnan | 40 |
Ragnheiður Benónísdóttir | Valur | 3 |
Sandra Lind Þrastardóttir | Horsholms, Danmörk | 14 |
Sigrún Sjöfn Ámundardóttir | Skallagrímur | 49 |
Thelma Dís Ágústsdóttir | Keflavík | 7 |
Þóra Kristín Jónsdóttir | Haukar | 2 |
#korfubolti