28 sep. 2017Nú var að ljúka bikardrættinum í Maltbikarnum, 32-liða úrslitum karla, en 34 lið eru skráð til leiks. Dregið var í forkeppni úrslitanna en þá eru neðri deildar lið dregin og kom það í hlut þessara félaga að leika í forkeppni sem fer fram í næstu viku.

Ármann - KV
Reynir S. - Stjarnan-b

Það voru þeir Birgir Sverrisson, starfsmaður lyfjanefndar ÍSÍ og Stefán Þór Borgþórsson, mótastjóri KKÍ, sem drógu að þessu sinni.

Eftirtalin lið drógust saman en tvær viðureignir eru milli Domino's deildarliða í 32-liða úrslitunum.
Leikið verður dagana 14.-16. október.

Stjarnan - Haukar
FSu - Grindavík
Hamar - ÍR
Njarðvík-b - Skallagrímur
Sindri - Vestri
Haukar-b - Þór Akureyri
Leiknir R. - Njarðvík
Reynir S. eða Stjarnan-b úr forkeppni - Fjölnir
Kormákur - KR
ÍA - Höttur
ÍB - Valur
Álftanes - Snæfell
Vestri-b - KR-b 
Gnúpverjar - Breiðablik
Ármann eða KV úr forkeppni - Keflavík
Tindastóll - Þór Þorlákshöfn

Það er því ljóst að tveir úrvalsdeildarslagir verða í fyrstu umferð, leikir Stjörnunnar og Hauka og Tindastóls og Þórs Þ..

#korfubolti