27 sep. 2017

Fimmtudaginn 28. september n.k. verður dregið í 32-liða úrslit Maltbikars karla. Dregið verður næst í 16-liða úrslit karla og kvenna. Að þessu sinni eru 34 lið skráð í bikarinn hjá körlum og því þurfti að draga í forkeppni tvær viðureignir. Það var gert fyrr í dag og eftirfarandi lið drógust saman:

Ármann - KV
Reynir S. - Stjarnan-b

Dregið verður í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík, kl. 12:15 í fundarsal E á 3. hæð.

Fulltrúum þeirra liða sem eru skráð til leiks er boðið á fundinn en veitingar verða í boði.