22 sep. 2017
KKÍ þjálfari 1.c er helgarnámskeið og fjarnám. Námskeiðið mun fara fram í íþróttamiðsöðinni Laugardal 3. hæð (fyrir hádegi á laugardag bókleg kennsla) og verkleg kennsla eftir hádegi í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Á sunnudag verður námskeiðið á Kjalanesi.
Áhersla er lögð á þjálfun barna 12 ára og yngri í KKÍ 1.c náminu. Hér er lögð meiri áhersla á samvinnu leikmanna en var gert í 1.a. KKÍ þjálfari 1.c gildir sem 40% af lokaeinkunn KKÍ þjálfara 1. Þjálfarar sem hafa lokið öllum prófum og verkefnum 1.a, b og c námi útskrifast með KKÍ 1 þjálfara réttindi.
Laugardagur 23. september 2017 – Laugardal og Valsheimili
09:00-09:40 Setning og skipulag þjálfunar (ÍSÍ 3. hæð) Ágúst Björgvinsson
09:40-11:00 Þjálfun 12 ára og yngri (ÍSÍ 3. hæð) Snorri Örn Arnaldsson
11:10-12:10 Samskipti í þjálfun barna (ÍSÍ 3. hæð) Pálmar Ragnarsson
12:10-13:00 Matarhlé
13:00-14:20 Taktík – Liðssókn; Hreyfingar án bolta (Valsheimili) Snorri Örn Arnaldsson
14:30-15:50 Taktík - Liðsvörn maður-á-mann (Valsheimili) Finnur Freyr Stefánsson
Sunnudagur 23. september 2017 -Kjalanesi
09:00-10:20 Skottækni, fótavinna og æfingar (framhald) Sævaldur Bjarnason
10:30-11:50 Vörn 1 á 1 (1á1 æfingar) Benedikt Guðmundsson
11:50-12:30 Matarhlé
12:30-13:50 Hraðupphlaup (2 á 1, 3 á 2) Benedikt Guðmundsson
14:00-15:30 Verklegt próf KKÍ (20% framkvæma æfingu af tímaseðli)
15:30-16:30 Umræður (hópar)
Skriflegt lokapróf KKÍ 1 er tímaseðil (20% tímaseðil)
Eftir námskeið fer þjálfari og fylgist með fjórum æfingum hjá börnu yngri en 12 ára, fylgst er með a.m.k tveimur mismunandi þjálfurum. Þjálfari þarf svo að vinna stutt verkefni uppúr æfingum sem fylgst var með.
Þegar þjálfari hefur lokið og skilað öllum verkefnum verður þjálfari boðaður í útskrift og afhent þjálfaréttindi KKÍ þjálfari 1.
Dagskráröð birt með fyrirvara um breytingar.