11 ágú. 2017

Drengirnir í 16 ára landsliðinu fylgdu góðum sigri á Sviss í gær eftir með öruggum sigri á Rúmeníu í dag 67-45. Eftir góða byrjun okkar drengja áttu Rúmenar fínan sprett undir lok 2. leikhluta og minnkuðu muninn í 36-24 í leikhléi. Íslensku strákarnir komu hins vegar dýrvitlausir inn í þriðja leikhluta og sigruðu hann 24-4 og gátu leyft sér smá kæruleysi í lokin án þess að það ógnaði öruggum sigri. 

Tölfræði leiksins má sjá hér en þar vekur helst athygli algörir yfirburðir Íslands í fráköstum þrátt fyrir að spila gegn mun hærri andstæðingum. Upptaka af leiknum er hér

 Á morgun kl 17:30 á íslenskum tíma leikur Ísland gegn Hvíta Rússlandi, en þeir sigruðu Sviss í dag og töpuðu fyrir Grikkjum í fyrsta leik. Leikurinn verður í beinni útsendingu hér.