
8 ágú. 2017
Íslensku stelpurnar spiluðu við Austurríki í Dublin í kvöld í jöfnum og skemmtilegum leik. Jafnt var á öllum tölum frá fyrstu mínútu en austurríka liðið var skrefinu á undan nær allan leikinn. Staðan í hálfleik var 23-20 fyrir þeim austurrísku og hélst sá munur í seinni hálfleik og vantaði aðeins herslumun upp á að íslenskur sigur kæmi í kvöld. Lokatölur í leiknum voru 55-52 fyrir Austurríki en átti íslenska liðið tækifæri til að jafna leikinn á síðustu metrunum en því miður gekk það ekki upp að þessu sinni.
Það er mikill stígandi í leik liðsins og þær hafa bætt sig í hverjum leik og vonandi kemur fyrsti sigurinn á morgun þegar íslensku stelpurnar spila við Albanínu. Leikurinn á morgun er úrslitaleikur um það hvort liðið spilar um sæti 9-16 eða 17-23 og hefst sá leikur kl.15:00 að íslenskum tíma.
Tölfræði leiksins í kvöld má nálgast á þessari síðu.


