2 ágú. 2017

Dregið verður í FIBA Europe Cup á morgun þriðja ágúst í höfuðstöðvum FIBA Europe í München. Ísland á fulltrúa í keppninni í ár en Íslandsmeistarar KR í Domino´s deild karla eru skráðir. Nanterre 92 frá Frakklandi er ríkjandi meistari eftir að hafa unnið samlanda sína Elan Chalon 82-79 síðasta vor.

 

KR er einmitt síðasta íslenska félagsliðið til að taka þátt í Evrópukeppni en þeir léku árið 2008 gegn Banvit frá Tyrklandi í Evrópukeppni félagsliða.

 

Fyrsta umferð undankeppninnar er 20. september og 27. september.

 

Eftirfarandi lið eru mögulegir andstæðingar KR í fyrstu umferð:

 

Belfius Mons-Hainaut (BEL) 

BC Rilski Sportist (BUL)

BK Pardubice (CZE) 

Egis Körmend (HUN)

BC Rabotnicki Skopje

(MKD) BM SLAM STAL Ostrow

(POL) CSM CSU Oradea (ROU)

Istanbul Büyüksehir (TUR)

Trabzonspor Medicalpark (TUR)

DNIPRO (UKR)

 

Sigurvegarar fara áfram í næstu umferð undankeppninnar þar sem er spilað 4. október og 11. október.

 

Að lokinni undankeppni er farið í 32 liða deildarkeppni þar sem spilað er í fjögurra liða riðlum.