27 júl. 2017Ísland mætir Belgíu í tveim vináttulandsleikum hér á landi, í undirbúningi liðanna fyrir EuroBasket 2017, og er komið að fyrri leik liðanna í kvöld. Leikurinn fer fram í Smáranum, Kópavogi og hefst hann kl. 19:15.
 
Seinni leikur liðanna fer svo fram á laugardaginn 29. júlí í íþróttahúsinu Vesturgötunni á Akranesi kl. 17:00.

Miðaverð verður 1.500 kr. fyrir 16 ára og eldri og 500 kr. fyrir yngri.
Miðasala við inngang á báðum leikjunum.

Leikirnir báðir, í kvöld og á Akranesi á laugardaginn, verða í beinni á SportTV.is á netinu og lifandi tölfræði á kki.is.

Leikskrá fyrir leikinn er á forsíðu kki.is og einnig að finna hérna.

Þetta eru síðustu heimaleikir liðsins fyrir EM í Finnlandi. 
Miðasala á EM fer fram á tix.is og enn er hægt að verða sér út um miða.

Áfram Ísland!