22 júl. 2017Íslenska landsliðið U20 karla tapaði í dag laugardag næst síðasta leiknum sínum á EM en leikið var um sæti 5.-8. Lokatölur 67:89 fyrir Serbíu. Það þýðir að sunnudaginn 23. júlí leika strákarnir okkar gegn Þýskalandi í leik um 7. sætið.
Leikurinn hefst kl. 13:30 og verður í beinni tölfræði og beinni útsendingu á vefsíðu keppninnar, FIBA.com og Youtube-rás FIBA.
#korfubolti