12 júl. 2017
Strákarnir töpuðu fyrir Ítölum með minnsta mun, 66-67, í síðasta leik æfingamótsins á Krít.
Leikurinn var jafn allan tímann og liðin skiptust á að hafa forystu. Ítalarnir leiddu samt lengur en okkar strákar. Strákarnir voru yfir í hálfleik 34-30 og það var mesta forysta þeirra í leiknum. Ítalir náðu forystu í þriðja leikhluta og leiddu eftir hann 47-52. Okkar strákar voru að elta allan 4. leikhluta. Náðu að jafna 56-56 um miðjan leikhlutann en Ítalarnir náðu forystunni aftur. Strákarnir fengu mörg tækifæri í lokin til að jafna eða komast yfir en það tókst ekki.
Spilamennskan hjá okkar strákum var að mörgu leyti góð. Vörnin gekk nokkuð vel með fáeinum undantekningum. Í sókninni töpuðu þeir “aðeins” 15 boltum sem er framför. Voru að fá fullt af góðum skotum en hittu ekki vel. Auk þess voru þeir duglegir að ráðast á körfuna og þá brutu Ítalarnir mikið á þeim. Fengu þ.a.l. mikið af vítum. Þar var nýtingin mjög slæm og þá er vægt til orða tekið. Hittu aðeins úr 9 af 36.
Þeir fá núna 2 daga frí il að hvíla sig og EM byrjar síðan á laugardaginn með leik gegn Frökkum kl. 16 (13 að íslenskum tíma).
Strákarnir hlakka til að sjá Íslendinga í stúkunni til að hvetja þá til dáða.