12 júl. 2017
KKÍ og Herragarðurinn hafa gert með sér samkomulag þess efnis að leikmenn karlalandsliðs Íslands í körfubolta klæðist sérsaumuðum jakkafötum frá Herragarðinum í tilefni þess að liðið er á leið á EuroBasket. Strákarnir unnu það glæsta afreka að komast á lokamót annað mótið í röð. Samkvæmt samkomulaginu mun Herragarðurinn útvega leikmönnum og þjálfurum jakkaföt sem þeir munu klæðast fyrir leiki og við sérstök tilefni á leiðinni og m.a. þegar haldið verður til Finnlands í lok ágúst.
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ: „Það er margt sem þarf að hugsa um þegar farið er á stórmót sem þetta og við erum gríðarlega ánægðir með að fá strákana í Herragarðinum til að liðsinna okkur við þetta verkefni, enda ekki hlaupið að því að fá jakkaföt á marga af okkar landsliðsmönnum. Við lögðum því verkefnið til fagmanna og Herragarðsmenn auðvitað þeir fyrstu sem koma í huga og komu þeir sterkir inn með hönnun og útlit á fötum sem okkur leist mjög vel á.“
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, verslunarstjóri Herragarðsins: „Við erum afar stoltir af því að KKÍ hafi falið okkur þetta verkefni að klæða þessa stóru og stæðilegu stráka í föt frá okkur. Við vitum af fenginni reynslu af landsliðinu í knattspyrnu að flott umgjörð í kringum liðið skiptir miklu máli og því var tilvalið að leggja hönd á plóg þegar sambandið leitaði til okkar. Það er ekki hlaupið að því fyrir marga í liðinu að fá á sig föt sem passa og við leysum það verkefni með ánægju. Það sem um er að ræða eru sérsaumuð jakkaföt frá línu okkar Herragarðurinn - sérsaumur sem hefur verið þjónusta sem hefur notið gríðarlegra vinsælda. Auk þess fá leikmenn skyrtur og bindi sem passa við. Það verður gaman að sjá strákana mæta á mótið vel klæddir, enda stórkostlegur árangur að Ísland sé að mæta á stórmót af þessum toga. Það má því segja að Herragarðurinn klæði landsliðið vel.“
Mynd: F.v.: Hermann Hauksson hjá Föt & Skóm, Vilhjálmur S. Vilhjálmsson verslunarstjóri Herragarðsins, Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Alvaro Calvi yfirmaður sérsaums í Herragarðinum.