10 júl. 2017
U20 lið karla tapaði í kvöld fyrir Spánverjum eftir mjög spennandi lokamínútur, 67-73. Strákarnir léku geysilega vel í fyrri hálfleik og Spánverjarnir sem eru núverand Evrópumeistarar voru í stökustu vandræðum með ákafa vörn þeirra. Það var mjög lítið skorað í upphafi og staðan var 8-7 fyrir Íslandi þegar rúmar 6 mínútur voru búnar af leiknum. Þá byrjaði sóknin hjá okkar strákum að virka og þeir juku muninn. Staðan var 21-12 eftir fyrsta leikhluta. Þeir héldu síðan áfram í öðrum leikhluta og unnu hann 22-15. Staðan í hálfleik 43-27 fyrir okkar strákum. Spánverjarnir töpuðu mikið af boltum og skotnýting þeirra ekki góð.
Í seinni hálfleik snerist þetta við. Spánverjarnir gerðust mun árásargjarnari bæði í vörn og sókn og pressuðu stíft. Þá fórum við að tapa boltanum og hittum síður. Spánverjarnir unnu 3. leikhluta 10-25 og staðan 53-52. Síðan í 4. leikhluta var leikurinn mjög jafn en þeir sigu framúr í lokin. Töpuðum 30 boltum í leiknum en Spánverjar “einungis” 22 og þar lá munurinn.
Margt hægt að læra af þessum leik og allir lögðu í púkkið á meðan vel gekk og á sama hátt gerðu allir mistök þegar illa gekk. Tilgangur þessa æfingamóts að gera strákana tilbúna áður en alvaran byrjar næstu helgi.
Tölfræði leiksins er hægt að sjá hér.