9 jún. 2017
Landslið kvenna vann Írland í kvöld, í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem spilaðir eru á Írlandi. Leikurinn í kvöld var í Cork og fór 69:63 fyrir Íslandi en staðan í hálfleik var 28:27 fyrir okkar stelpum.
 
Erna Hákonardóttir, Dagbjört Dögg Karlsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir spiluðu sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.

Hildur Björg Kjartansdóttir var síðan valin leikmaður leiksins.
 
Seinni vináttulandsleikur þjóðanna er á morgun laugardag í Dublin og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma.
 
Leikurinn í kvöld var sýndur í beinni á netinu og verða upplýsingar um slíkt settar á samfélagsmiðla KKÍ á morgun fyrir seinni leikinn.

 #korfubolti