2 jún. 2017

Gatorate körfuboltabúðirnar árlegu fara fram í Valshöllinni að Hlíðarenda þann 6. til 9. júní 2017. Þetta er 16. árið í röð sem búðirnar fara fram en það er Ágúst S. Björgvinsson þjálfari karlaliðs Vals sem er yfirþjálfari að vanda. Búðirnar í ár eru frá þriðjudegi 6. júní til föstudagsins 9. júní næstkomandi, en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og körfuboltastelpur á aldrinum 12 til 18 ára.

Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu frá góðum þjálfurum sem munu þjálfa í búðunum. Körfuboltabúðirnar eru á milli kl. 18:00 og 21:00 á hverjum degi og verðið er 7.500 kr. fyrir hvern þátttakanda.

Skráning með tölvupósti: coachgusti@gmail.com