31 maí 2017Í dag er komið að öðrum keppnisdegi liðanna okkar á Smáþjóðaleikunum 2017.

Landslið kvenna mætir Möltu kl. 13:00 að íslenskum tíma. Malta lék í gær gegn Kýpur og vann öruggan sigur. 

Landslið karla mætir heimamönnum San Marínó kl. 18:00 að íslenskum tíma. San Marínó tapaði í gær fyrir Andorra. Mjög líklegt er að leikurinn sé sýndur á RTV San Marino sjónvarpsstöðinni og hægt er að finna link frá því í gær á netútsendingu á facebook.

Strákarnir okkar eru með snappið hjá World Class í dag. Bætið þeim við á worldclassice notendanafninu á Snapchat þar sem þeir hafa verið duglegir að setja inn myndbrot frá deginum í undirbúningi sínum fyrir leiki kvöldsins.

Lifandi tölfræði frá öllum leikjum er að finna á www.statbasket.it

Áfram Ísland!

#korfubolti