28 apr. 2017

Keflavík varð um síðastliðna helgi Íslandsmeistari í minnibolta 11 ára stúlkna en þetta er fyrsti árgangurinn sem keppir um Íslandsmeistaratitilinn. Með Keflavík léku í A-riðli á lokamótinu Njarðvík, Þór Þ., Hrunamenn, Haukar-b og Stjarnan og unnu Keflavík alla leiki sína á mótinu og stóðu uppi sem sigurvegarar eftir að öll mót vetrarins voru talin.

Þjálfari stelpnanna er Jón Guðmundsson.

Til hamingju Keflavík!

 #korfubolti