27 apr. 2017

Hreinan oddaleik þarf til að skera úr um það hvaða lið verður Íslandsmeistari 2017 í Domino's deildar karla! 

Leikurinn fer fram á sunnudaginn kemur 30. apríl kl. 19:15 í DHL-höllinni í Vesturbænum á heimavelli KR og verður sjónvarpað beint á Stöð 2 Sport!
Þá verður leikinn 5. og síðasti leikurinn í lokaúrslitunum á milli KR og Grindavíkur. Staðan er 2-2 og leikið verður til þrautar og fer sigurvegari leiksins heim með Íslandsmeistarabikarinn.

Ekki láta þennan sögulega leik fram hjá þér fara og fylgstu með í DHL-höllinni, á Stöð 2 Sport og/eða í lifandi tölfræði á KKI.is.

🍕 Domino's deild karla:
🏆
Úrslit · Sunnudaginn 30. apríl
➡️
Leikur 5 · DHL-höllinni
⏰ 19:15
🏀 KR - Grindavík
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport


#korfubolti  #dominos365