31 mar. 2017
Í kvöld ræðst í hreinum úrslitaleik milli Þórs Akureyri og Breiðablik í 1. deild kvenna hvort liðið vinnur sér inn sæti í Domion's deildinni að ári. Liðin hafa unnið sitthvorn útileikinn og því þarf oddaleik til að skera úr um það hvort liðið fer upp um deild.
Leikurinn fer fram í Síðuskóla á Akureyri og hefst hann kl. 19:30 í kvöld.
Bein netútsending verður á thorsport.is og lifandi tölfræði á sínum stað á kki.is.
1. deild kvenna · Úrslit · Leikur 3
Þór Akureyri-Breiðablik
Síðuskóla, Akureyri
Kl. 19:30
#korfubolti