31 mar. 2017Í kvöld fór fram oddaleikur á Akureyri milli Þórs Akureyri og Breiðabliks í úrslitakeppni 1. deildar kvenna. Staðan í einvíginu var 1-1 og því hreinn úrslitaleikur um sætið í efstu deild að ári.
Leikurinn fór 42:56 og vann því Breiðablik einvígið 2-1.
Breiðablik lék síðast í efstu deild árið 2015 og þar á undan árið 2007 en félagið hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari, árið 1995. Breiðablik á að baki sex tímabil í efstu deild og verður því tímabilið 2017-2018 það sjöunda í sögunni.
Til hamingju Breiðablik!
#korfubolti