26 mar. 2017Í kvöld ræðst það hvaða lið fer í úrslit 1. deildar karla í ár en Valur og Breiðablik mætast í oddaleik í undanúrslitunum kl. 19:30 í kvöld. 

Leikurinn fer fram í Valshöllinni að Hlíðarenda og má búast við fjölmenni og góðri stemmningu líkt og verið hefur á öllum leikjum liðanna hingað til.

Lifandi tölfræði frá leiknum verður á sínum stað á kki.is.

#korfubolti