25 mar. 2017Í dag er komið að stórleik Fjölnis og Hamars í undanúrslitum 1. deildar karla. Bæði lið hafa unnið tvo leiki og því hreinn úrslitaleikur í dag kl. 17:00 um sæti í lokaúrslitunum í ár þar sem sæti í Domino's deild karla að ári er í boði.
Leikið er í Dalhúsum í Grafarvogi og má búast við fjölmenni og góðri stemmningu líkt og verið hefur á öllum leikjum liðanna hingað til, en þeir hafa einmitt verið mjög spennandi og hefur þurft þrjár framlengingar í síðustu tveimur leikjum.
Lifandi tölfræði frá leiknum verður á kki.is
Á morgun sunnudag mætast svo Valur og Breiðablik í Valshöllinni í hinum oddaleik undanúrslitana.
#korfubolti