27 jan. 2017
Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir eftir umsóknum á þjálfaranámskeið
FIBA Europe, FIBA Europe
Coaching Certificate (FECC).
Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar þrjú sumur, árin 2017, 2018 og
2019.
Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi.
KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það
kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn.
Þátttakendur bera kostnað við flug og uppihald en námskeiðið sjálft er gjaldfrjálst. KKÍ veitir styrk að upphæð 50.000 kr. fyrir hvert ár.
Áhugasamir þurfa að fylla út umsóknareyðublað og í kjölfarið senda umsóknina
inn til KKÍ á netfangið kki@kki.is fyrir 14. febrúar næstkomandi.
Upplýsingar um námskeiðið má finna hér að neðan:
Fimm íslenskir þjálfarar hafa klárað FECC þjálfarnámið.
Einar Árni Jóhannsson 2011
Lárus Jónsson 2013
Hjalti Þór Vilhjálmsson 2013
Ágúst S. Björgvinsson 2015
Ingi Þór Steinþórsson 2015
Hallgrímur Brynjólfsson er í náminu og klárar 2018.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Þór Borgþórsson á skrifstofu KKÍ.