13 jan. 2017Tveir leikir fara fram í kvöld í Domino's deild karla. 

Haukar taka á móti Grindavík í Hafnarfirði kl. 19:15 og Njarðvík og Snæfell mætast í Ljónagryfjunni kl. 20:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Kl. 22:00 er svo komið að Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport þar sem leikir umferðarinnar í Domino's deildum karla og kvenna verða gerðir upp.

Fylgist með umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365. 

Lifandi tölfræði frá báðum leikjum kvöldsins á kki.is.