30 des. 2016Samtök íþróttafréttamanna gerðu upp keppnisárið 2016 í árlegu hófi sínu í kvöld. 24 félagsmenn Samtaka íþróttafréttamanna greiddu atkvæði að þessu sinni og var niðurstaðan tilkynnt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Martin Hermannsson var á topp 10 í kjörinu í ár og var hann í 9. sæti að þessu sinni. Martin og Gunnhildur Gunnarsdóttir tóku við viðurkenningum í kvöld sem körfuknattleiksfólk ársins.

Atkvæði í kjörinu 2016 skiptust eftirfarandi:
1. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna 430 stig
2. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund 390
3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf 214
4. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna 167
5. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund 117
6. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna 100
7. Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar 80
8. Aron Pálmarsson, handbolti 65
9. Martin Hermannsson, körfubolti 57
10. Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir 45
11. Ragnar Sigurðsson, knattspyrna 28
12. Kári Árnason, knattspyrna 23
13. Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar 16
14. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti 7
15. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir 6
16. Irina Sazonova, fimleikar 3
17. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 2
18. Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrna 1
19. Birgir Leifur Hafþórsson, golf 1

Lið ársins:
1. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu 120 stig
2. Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu 62 stig
3. Karlalandslið Íslands í körfubolta 30 stig
4. Kvennalandslið Íslands í hópfimleikum 3 stig
5. Karlalandslið Íslands í handbolta 1 stig