21 des. 2016Helgi Jónas Guðfinnsson, fyrrum landsliðsmaður íslenska landsliðsins og atvinnumaður í körfubolta, hefur einbeitt sér að styrktarþjálfun á undanförnum árum. Hann er um þessar mundir að gefa út nýja bók sem á erindi við alla körfuknattleiksþjálfara en það er bókin „Little Lessons About Basketball Conditioning“.

Helgi hefur ákveðið að bjóða bókina frítt án endurgjalds fyrir þá sem vilja en einnig er tekið á móti frjálsum framlögum og fer allur ágóði af bókinni í að styrkja fjölskyldur og einstaklinga sem þess þurfa um hátíðirnar. Ekki er verið að biðja um mikið því margt smátt gerir eitt stórt. Áhugasamir geta lagt inn á reikning:

0143-05-060613 og kt. 581103-3360 - Helgasport ehf

Hægt er að ná í bókina á vefslóðinni http://littlelessonsonbasketballconditioning.pagedemo.co og kemur hún í tölvupósti í nokkrum hlutum.