16 des. 2016
Í kvöld kl. 22:00 verður Körfuboltakvöld í beinni útsendingu þar sem síðasta umferð verður gerð skil og að auki verða verðlaun afhent fyrir frammistöðu í fyrri hlutanum í deildinni í Domino's deildum karla og kvenna.

Jólaþáttur Domino's Körfuboltakvölds verður haldin hátíðilegur í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Farið verður yfir síðastu umferð og þá verða verðlaun afhent fyrir frammistöðu leikmanna, þjálfara og dómara í fyrri hlutanum í Domino's deildum karla og kvenna af Stöð 2 Sport, KKÍ og Domino's.

Valið verður úrvalslið karla- og kvenna megin fyrir fyrri hluta tímabilsins auk þess sem besti leikmaður fyrri hlutans í hvoru úrvalsliði verður útnefndur. Þá verða valdir besti ungu leikmennirnir, bestu varnarmenn karla og kvenna, besti þjálfarinn í hvorri deild fyrir sig og besti dómari fyrri hlutans.

Verðlaunahafar mæta og taka við verðlaunum en þátturinn verður tekinn upp á Hótel Borg.

Fylgist með umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365