2 des. 2016

Einn leikur fer fram í dag í 16-liða úrslitum Maltbikars karla þegar Haukar leika gegn Haukum-b á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Á morgun sunnudag fara svo fram þrír leikir og á mánudaginn lýkur 16-liða úrslitunum með síðustu þrem leikjunum, en áður hafa Njarðvík-b og Höttur mæst í Njarðvík þar sem Höttur hafði sigur og er komið áfram í 8-liða úrslit. Það ræðst svo eins og áður segir eftir mánudaginn hvaða lið komast áfram ásamt Hetti og verður dregið í næstu umferð á þriðjudaginn kemur í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar.

 

Leikur Keflavíkur og Þórs Þ. verður sýndur í beinni á RÚV á sunnudaginn kl. 15:00.

 

#korfubolti