2 des. 2016
Domino’s deild karla í kvöld býður upp á einn leik sem sýndur verður í beinni á Stöð 2 Sport en leikurinn hefst kl. 20:00.
 
🏀Keflavík-KR · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

Lifandi tölfræði frá leiknum verður á sínum stað á kki.is.

Körfuboltakvöld er svo á dagskránni kl. 22:00 þar sem leikir í Domino's deildum karla og kvenna verða gerðir upp og helstu tilþrifin sýnd.

Fylgist með umræðunni yfir leiknum og Körfuboltakvöldi á twitter undir #korfubolti og #dominos365.