25 nóv. 2016

Domino's deild karla býður upp á tvo leiki í kvöld. Stöð 2 Sport sýnir beint frá Þorlákshöfn, viðureign Þórs Þ. og Tindastóls kl. 20:00. Kl. 22:00 er svo komið að Körfuboltakvöldi þar sem leikir umferðarinnar í deildum karla og kvenna verða gerðir upp.

Domino's deild karla · Leikir kvöldsins
🏀Þór Þ. - Tindastóll · Sýndur beint á Stöð 2 Sport
🏀Haukar-Keflavík · Sýndur beint á netinu á tv.haukar.is

+ Körfuboltakvöld kl. 22:00.

Lifandi tölfræði verður á kki.is frá öllum leikjum kvöldsins að venju.
Fylgist með umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365.

Góða skemmtun!