22 nóv. 2016Á morgun, miðvikudaginn 23. nóvember, leikur íslenska A-landslið kvenna gegn Portúgal í Laugardalshöllinni í undankeppni EM, EuroBasket 2017. Leikurinn hefst kl. 19:30 og verður sýndur í beinni á RÚV. 

Miðasala er hafin á tix.is á leikinn en KKÍ hvetur körfuknattleiksaðdáendur til að fjölmenna og styðja við bakið á stelpunum í Höllinni. Portúgal hafði sigur í fyrri leik liðana sem fór fram í febrúar en stelpurnar okkar ætla að mæta ákveðnar til leiks og sækja sigur í þessum lokaleik sínum í undankeppninni að þessu sinni.

#korfubolti