22 nóv. 2016

Í dag 22. nóvember er komið að stóru stundinni þegar dregið verður í riðla fyrir lokamót EM, EuroBasket 2017, hjá landsliði karla, en dregið verður kl. 14:00 að íslenskum tíma.

 

Ísland leikur eins og alþjóð veit í annað skipti í sögu KKÍ á lokamóti Evrópumótsins og mun leika í Finnlandi í byrjun september á næsta ári. Miðasala á leiki Íslands fer fram á www.tix.is.

 

Drátturinn fer fram í Istanbul í Tyrklandi og verða fulltrúar KKÍ viðstaddir ásamt fulltrúum allra landanna 24 sem taka þátt á EM. Hefð er fyrir því að það land sem mun hýsa úrslitakeppnina sjái um dráttinn en slíkt var gert í Frakklandi fyrir árið 2015.

 

Fyrirfram er vitað að eftirtaldar þjóðir hafa náð samkomulagi og leika saman (gestgjafar og meðgestgjafar) og getur Ísland því ekki leikið gegn öðrum þessara þjóða en Finnum.

 

Finnland og Ísland

Ísrael og Litháen

Rúmenía og Ungverjaland

Tyrkland og Rússland

 

Löndin sem Ísland getur dregist í riðil með í Finnlandi eru því eftirfarandi:

1. stykleikaflokkur: Spánn, Frakkland eða Serbía

2. stykleikaflokkur: Grikkland, Ítalía, Tékkland eða Lettland

3. stykleikaflokkur: (Finnland nú þegar ákveðið)

4. stykleikaflokkur: Slóvenía eða Georgía

5. stykleikaflokkur: Þýskaland, Belgía, Pólland eða Svartfjallaland

6.. stykleikaflokkur: (Ísland)

 

Bein útsending verður frá drættinum í Istanbul á YouTube-síðu FIBA og á ruv.is kl. 14:00:

YouTube-rás FIBA

ruv.is


Nýr keppnisbolti og bikar kynntir til leiks:
FIBA mun frumsýna nýjan keppnisbolta fyrir EuroBasket 2017 sem og kynna til leiks nýjan bikar sem afhendur verður sigurvegurum mótsins. FIBA og Molten, framleiðandi boltans, hafa efnt til leiks og geta allir skráð sig og freistað gæfunar að vinna alvöru keppnisbolta: fiba.com/eurobasket/official-ball