20 nóv. 2016Íslenska kvennalandsliðið ferðast heim í dag frá Slóvakíu og kemur heim seinnipartinn og hefst þá undirbúningurinn fyrir síðasta leik liðsins í undankeppninni sem er gegn Portúgal.

Hann fer fram miðvikudaginn 23. nóvember í Laugardalshöllinni og hefst hann kl. 19:30. Leikurinn verður einnig sýndur í beinni á RÚV en miðasala er hafin á tix.is.
KKÍ hvetur körfuknattleiksaðdáendur til að fjölmenna og styðja við bakið á stelpunum í Höllinni.

#korfubolti