19 nóv. 2016Íslenska kvennalandsliðið lék í kvöld gegn landsliði Slóvakíu á útivelli í undankeppni EM, EuroBasket Women 2017. Heimakonur unnu sannfærandi sigur á okkar liði 86:40.

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var stigahæst með 7 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir var með 6 stig. Allir leikmenn Ísland tóku þátt og allar komust þær á blað í leiknum í kvöld og skoruðu 1 stig eða meira.
Næsti leikur liðsins verður hér heima og verður jafnframt síðasti leikur liðsins í undankeppninni. Þá kemur lið Portúgals í heimsókn og fer leikurinn fram í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 23. nóvember kl. 19:30.

Miðasala fer fram á tix.is á leikinn gegn Portúgal.

#korfubolti