18 nóv. 2016
Á miðvikudaginn 23. nóvember fer fram landsleikur Íslands-Portúgals í undankeppni EM kvenna 2017. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni og hefst kl. 19:30.
Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir leikinn því ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn.
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu föstudaginn 18. nóvember á skrifstofu KKÍ á milli 09:00 og 16:00.
Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli 09:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis/skilríkja í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is
Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“
Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - http://www.kki.is/log-og-reglugerdir/reglugerdir/yfirlit-reglugerda/reglugerd-um-adgonguskireini/
Almenn miðasala fer fram á tix.is