17 nóv. 2016

KKÍ stendur fyrir dómaranámskeiði á tveimur stöðum, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar í Reykjanesbæ, frá föstudegi til sunnudags, dagana 25.-27. nóvember 2016. Athygli er vakin á að námskeiðin verða ekki í fjarnámi, heldur fer bóklegi hlutinn fram í kennslustofu. Verklegi hlutinn verður eftir sem áður í íþróttasal.

 

Nánari stað- og tímasetningar verða birtar þegar nær dregur.

 

Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 24. nóvember. Námskeiðin standa öllum til boða, veita fullgild dómararéttindi, og munu kosta 5.000,- kr.

 

Bent er á að leikreglur er að finna á kki.is.

 

Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, símanúmer, heimilisfang, netfang og félag.