17 nóv. 2016

Ákveðið hefur verið að sýna leik ÍR og KR beint í kvöld á Stöð 2 Sport. Upphaflega átti að sýna leik Stjörnunnar og Tindastóls en þeim leik var frestað vegna ófærðar.

Leikur Stjörnunnar og Tindastóls verður á morgun kl. 18:00 og í beinni á Stöð 2 Sport en strax að honum loknum hefst leikur Keflavíkur og Grindavíkur kl. 20:00. Að loknum þeim leik hefst svo Körfuboltakvöld.

Því verða fjórir af sex leikjum sjöunda umferðar Domino´s deildar karla í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en í gærkvöldi var leikur Njarðvíkur og Hauka í beinni.

Aðrir leikir umferðarinnar eru Snæfell-Skallagrímur sem fer fram í kvöld og viðureign Þórs Ak. og Þórs Þ. sem fer fram annað kvöld og verður í beinni á thorsport.is/tv.