15 nóv. 2016

Sigmundur Már Herbertsson er kominn aftur til Svíþjóðar til dómgæslustarfa. Í kvöld dæmir hann leik Södertalje Kings og Telekom Baskets frá Bonn í Þýskalandi.

Leikurinn fer fram í Södertalje sem er mörgum Íslendingum kunn en þar fer Scania Cup fram um hverja páska.

Leikurinn er liður í C riðli FIBA Europe Cup og vann þýska liðið fyrri leik liðanna.

Meðdómarar Sigmundar í kvöld eru Nicolas Maestre frá Frakklandi og Juris Kokainis frá Lettlandi. Eftirlitsmaður er Atso Matsalu frá Eistlandi.