
11 nóv. 2016
Í kvöld föstudag fara fram tveir hörkuleikir í Domino's deild karla. Þór Þorlákshöfn og Stjarnan mætast í Þorlákshöfn kl. 20:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kl. 19:15 mætast í DB Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði, Haukar og ÍR.
Leikir kvöldsins:
🏀Þór Þorlákshöfn-Stjarnan · Sýndur beint á Stöð 2 Sport kl. 20:00
🏀Haukar-ÍR · Sýndur á netinu á tv.haukar.is kl. 19:15
Kl. 22:00 er komið að uppgjöri umferðarinnar í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport þar sem tilþrif og leikirnir allir verða gerðir upp á skemmtilegan hátt af sérfræðingum Stöðvar 2 Sport.
Fylgist með umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365.


