10 nóv. 2016
Sigmundur Már Herbertsson dæmir í kvöld leik Luleå Basket og Udominate í FIBA EuroCup kvenna.
Leikurinn er í H-riðli keppninnar og eru bæði liðin sænsk, í síðustu viku var Leifur S. Garðarsson á ferðinni og dæmdi heimaleik hjá báðum liðum.
Bæði liðin hafa tapað tveim fyrstu leikjum sínum.
Meðdómarar Sigmundar er kvöld eru Ilya Putenko frá Rússlandi og Per-Kristian Larsen frá Noregi. Eftirlitsmaður er Eugeniusz Kuglarz frá Póllandi.