9 nóv. 2016Framundan í nóvember eru tveir síðustu landsleikirnir í undankeppni EM, EuroBasket kvenna 2017, hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik.

Ívar Ásgrímsson, þjálfari, og Bjarni Magnússon, aðstoðarþjálfari, hafa valið 15 manna æfingahóp sem kemur fyrst saman þann 13. nóvember til æfinga.

Leikirnir í nóvember eru gegn Slóvakíu þann 19. nóvember ytra og hér heima í Laugardalshöllinni þann 23. nóvember gegn Portúgal og eins og áður segir lýkur þar með undankeppninni fyrir EM á næsta ári sem hófst í nóvember 2015 eftir nýju keppnisfyrirkomulagi FIBA.

Ljóst er að talsverðar breytingar eru á leikmannahópnum sem tók þátt í fyrstu fjórum leikjum keppninnar en hægt að horfa með jákvæðum augum fram á veginn. Verið er að horfa til framtíðar og fá inn unga framtíðarleikmenn í bland við reynslumeiri leikmenn að þessu sinni. Talsverð forföll eru að auki þar sem nokkrir leikmenn frá sigurleiknum gegn Ungverjum, eru fjarverandi og ekki í æfingahóp, þar á meðal Helena Sverrisdóttir og Margrét Kara Sturludóttir, sem eru barnshafandi.

Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Thelma Dís Ágústsdóttir og Birna Valgerður Benónýsdóttir allar frá Keflavík og Ragnheiður Benónísdóttir, Skallagrím, eru nýliðar í æfingahópnum en voru í æfingahóp liðsins í sumar og þá lék Elín Sóley Hrafnkelsdóttir sýna fyrstu tvo A-landsliðsleiki í sumar gegn Írlandi í vináttulandsleikjum.

15 manna æfingahópur Íslands er skipaður eftirtöldum leikmönnum fyrir síðustu tvo leikina í Evrópukeppninni:
Berglind Gunnarsdóttir - Snæfell · 6 landsleikir
Birna Valgerður Benónýsdóttir - Keflavík · Nýliði
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir - Valur · 2 landsleikir
Emelía Ósk Gunnarsdóttir - Keflavík · Nýliði
Gunnhildur Gunnarsdóttir - Snæfell · 25 landsleikir
Hallveig Jónsdóttir - Valur · 3 landsleikir
Ingibjörg Jakobsdóttir - Grindavík · 14 landsleikir
Ingunn Embla Kristínardóttir - Grindavík · 7 landsleikir
Pálína María Gunnlaugsdóttir - Snæfell · 35 landsleikir
Ragna Margrét Brynjarsdóttir - Stjarnan · 35 landsleikir
Ragnheiður Benónísdóttir - Skallagrímur · Nýliði
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir - Keflavík · 1 landsleikur
Sandra Lind Þrastardóttir - Horsholms 79’ers, Danmörku · 9 landsleikir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - Skallagrímur · 42 landsleikir
Thelma Dís Ágústsdóttir - Keflavík · Nýliði